Rannsókn á banaslysi á Miklubraut í Reykjavík í febrúar heldur áfram og vísbendingar eru um að það megi rekja til hraðaksturs. Enn er beðið eftir niðurstöðu bíltæknirannsóknar auk annarra rannsóknargagna.„Það má búast við einhverjum mánuðum í það. Bíltæknirannsókn tekur tíma, henni er ekki aflokið. Það er bara beðið eftir gögnum til að geta klárað rannsóknina hjá okkur,“ segir Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rætt hafi verið við öll vitni.„Það er allt sem bendir til þess, í frumdrögum skýrslunnar, að hér sé um hraðakstur að ræða, miðað við aðstæður.“Tveir sautján ára drengir voru í bílnum, sem hafnaði á stólpa við Miklubraut. Drengurinn sem sat í farþegasætinu lést. Ökumaðurinn slasaðist töluvert og var fluttur með sjúkrabíl á s