Samlagsfélag Torfa Fjalars Jónassonar hjartalæknis og Ölmu Möller, þáverandi landlæknis og núverandi heilbrigðisráðherra, fékk greiddar rúmlega 9 milljónir króna í vertakagreiðslur fyrir hjartaómskoðanir á Sjúkrahúsinu á Akureyri árið 2023. Þessar vertakagreiðslur bætast við greiðslur sem samlagsfélagið fékk fyrir svokölluð ferliverk þetta sama ár og fleiri. Þetta kemur fram í svörum frá heilbrigðisráðuneytinu við spurningum fréttastofu um greiðslur til samlagsfélagsins fyrir þessar hjartaómskoðanir.Rúmlega 9 milljónir er heildargreiðslan til félags Torfa og Ölmu fyrir árið 2023 en í þessari greiðslu eru aðstöðugjöld upp á rúmar þrjár milljónir sem félagið greiðir til Sjúkrahússins á Akureyri. Eftir standa því tæplega sex milljónir króna eftir greiðslu aðstöðugjaldanna.Í svari frá heilbrig