Alþingismenn luku í gærkvöldi fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Þingfundur stóð fram til að verða ellefu þar sem tekist var á um málið en að endingu lauk umræðunni og fer málið nú í síðari umræðu og til meðferðar hjá utanríkismálanefnd Alþingis.