Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjö handteknir fyrir meiriháttar líkamsárás

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók sjö menn í Hlíðunum í Reykjavík fyrir meiriháttar líkamsárás. Þeir voru allir settir í fangaklefa meðan árásin er rannsökuð. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en þar er ekki frekari upplýsingar að finna um árásina.Tveir menn í annarlegu ástandi voru handteknir fyrir líkamsárásir, annar í Hlíðunum en hinn í póstnúmeri 108. Báðir fengu að dúsa í fangaklefa.Lögregla brást einnig við útköllum vegna minni háttar líkamsárása í Vogunum í Reykjavík og í Kópavogi. Annað atvikið var afgreitt á vettvangi en í hinu er vitað hver árásarkonan er. Lögreglubílar við lögreglustöðina á Hverfisgötu.RÚV / Ragnar Visage
Sjö handteknir fyrir meiriháttar líkamsárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta