Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stormur og norðanhríð

Hríðarveður og stormur geisa á Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra og getur vindur farið í yfir 35 metra á sekúndu í hviðum undir fjöllum. Samgöngur hafa raskast á nokkrum stöðum á landinu vegna ófærðar og snjóflóðahættu. Heldur ætti að sljákka í veðrinu fyrir tíu á Ströndum og Norðurlandi vestra og fyrir klukkan fimm síðdegis á Vestfjörðum.Stormur geisar á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þar sleppur fólk við úrkomuna en vindurinn er slíkur að hviður geta verið hættulegar farartækjum sem taka á sig mikinn vind.Snjókoma eða skafrenningur er á norðanverðu landinu og dálítil rigning eða slydda suðaustantil. Annars er bjart með köflum.Norðan og norðaustan tíu til átján metrar á sekúndu, en átján til 25 norðvestanlands fram yfir hádegi. Snjókoma eða skafrenningur á norðanverðu landinu, dálí
Stormur og norðanhríð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta