Netglæpum á Íslandi fjölgaði um rúm 40 prósent í fyrra og sérfræðingar segja þróunina skýra: Árásirnar eru orðnar fleiri, skipulagðari og erfiðara að átta sig á þeim en áður. Gögn frá netöryggissveitinni CERT-IS sýna að 2312 mál komu á borð sveitarinnar í fyrra, samanborið við 598 árið 2021. Það jafngildir meira en sex málum á dag.Ekki er þó aðeins um hefðbundin netsvik gegn einstaklingum að ræða. Innbrot í tölvukerfi, tölvupóstar og samskipti fyrirtækja eru orðin stærri hluti vandans, að sögn Magna R. Sigurðssonar, forstöðumanns CERT-IS. Þróun NETGLÆPUM FJÖLGAR HRATT Mál hjá CERT-IS síðustu ár 598 2021 700 2022 1266 2023 1612 2024 2312 2025 Meira en sex mál á dag Rúm 40% aukning frá fyrra ári „Við sjáum töluverða aukningu í innbrotum í kerfi,“ segir Magni. Þar séu árásarmenn annars vega