Alríkisdómstóll í Massachusetts í Bandaríkjunum hefur tímabundið komið í veg fyrir að heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum geti breytt tilmælum um grunnbólusetningar á börnum.Lagabreytingarnar hefðu líklega brotið gegn alríkislögum ef af þeim hefði orðið. Dómarinn, Brian Murphy, úrskurðaði einnig að endurskipulagning nefndarinnar sem gefur út tilmælin væri óleyfileg og allar ákvarðanir nýju nefndarinnar yrðu settar á bið.Heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, Robert F. Kennedy yngri, tilkynnti í janúar ákvörðun sína um breytt tilmæli um grunnbólusetningar barna við ýmsum sjúkdómum eins og inflúensu, covid-19 og fleiri sjúkdómum.Þessi ákvörðun hans mætti mikilli andstöðu og gagnrýni, meðal lækna og sérfræðinga, ekki hvað síst meðal nefndarinnar sem gefur út tilmælin um bólusetningar til heilbrig