RÚV / Bragi ValgeirssonÚtboð vegna jarðvegsvinnu er fyrirhugað á næstu vikum vegna bygginar nýs öryggisfangelsis á Stóra-hrauni og hefjast framkvæmdir í kjölfarið. Farið var yfir stöðu fangelsismála í sérstakri umræðu á Alþingi í gær.Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra sagði undirbúning að fangelsinu ganga vel.Fangelsið verður með 128 afplánunarrými og mun bæta aðstöðu til að aðskilja fanga eftir þörfum og efla öryggi að sögn dómsmálaráðherra.