Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Losa varaeldsneytisforða vegna hækkunar á eldsneytisverði

Áströlsk stjórnvöld samþykktu í gær losun á varaeldsneytisforða, alls 762 milljón lítra af bensíni og dísil. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá.Eldsneytið fer í sölu til neytenda í dag. Talið er að eldsneytisverð muni lækka við þessar aðgerðir eftir hækkun undanfarnar vikur. Verð á bensínlítranum hækkaði um 50 áströlsk sent, eða 44 íslenskar krónur, í fimm stærstu borgum Ástralíu frá 20. febrúar til 11. mars.Yfirvöld í Nýja Suður-Wales, fjölmennasta ríki Ástralíu, greindu frá því að bensínbirgðir á 32 af 3.000 bensínstöðvum landsins væru að tæmast eða hefðu klárast. Langar raðir mynduðust á bensínstöðvum þegar íbúar fóru að byrgja sig upp af eldsneyti þrátt fyrir beiðni stjórnvalda um að hamstra ekki eldsneyti.
Losa varaeldsneytisforða vegna hækkunar á eldsneytisverði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta