Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óttast um mikið mannfall eftir árás á fíknimeðferðarstöð í Kabúl

Allt að 400 manns voru drepnir og 250 eru sagðir særðir eftir miklar loftárásir pakistanska hersins á fíknimeðferðarstöð í Kabúl höfuðborg Afganistan í gær.Tölur um mannfall eru óljósar og heimildarmönnum AFP fréttaveitunnar ber ekki saman um mannfall. Talsmaður heilbrigðismálaráðuneytisins, Sharafat Zaman, sagði 200 hafa verið drepna og yfir 200 væru særðirHamdulla Fitrat, einn talsmanna talibanastjórnarinnar, sagði þó að helmingi fleiri hefðu verið drepnir og 250 séu særðir.Stjórnvöld í Pakistan segja að árásinni hafi verið beint að hernaðarlegum innviðum og neita því að árásin á meðferðarstöðina hafi verið viljandi.Pakistanski herinn hefur gert miklar árásir á borgir og héruð í Afganistan á undanförnum vikum. Átökin milli landanna hafa stigmagnast síðan 26. febrúar þegar Pakistan lýsti
Óttast um mikið mannfall eftir árás á fíknimeðferðarstöð í Kabúl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta