Þjóðvegi 85, Norðausturvegi, hefur verið lokað á Tjörnesi vegna umferðarslyss. Heimir Harðarson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir í viðtali við fréttastofu að erlendir ferðamenn hafi hafnað utan vegar vegna þungrar færðar á veginum.Heimir segir ferðamennina óslasaða. Þeir óskuðu þó eftir aðstoð við að komast í skjól. Björgunarsveitin Garðar á Húsavík hefur verið send á vettvang en slysið varð um 20 kílómetrum norðan við Húsavík.Vegurinn er lokaður á Tjörnesi.Vegagerðin / Umferdin.is