Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands, telur líklegra að næsta eldgos í Sundhnúksgígaröðinni verði á næstu dögum eða vikum frekar en að margir mánuðir séu í það. Aldrei hefur jafn mikil kvika safnast undir Svartsengi frá upphafi eldgosahrinunnar en Kristín segir mögulegt að meiri kvika geti þýtt stærra eldgos.Oddur Þórðarson ræddi við Kristínu um kvikumagnið í sjónvarpsfréttum í kvöld.Kvikumagn hefur ekki verið meira frá upphafi eldgosa í Sundhnúksgígaröðinni. Líklegt þykir að það gjósi á næstu dögum eða vikum. „STYTTIST Í GOS“ „Kvikuinnflæðið hefur verið mjög hægt undanfarið,“ segir Kristín. Hún bendir á að kvikumagnið sé nú örlítið meira en þegar síðasta eldgos hófst, 1. apríl í fyrra. „Við túlkum þetta auðvitað svo að við séum bara mjög nálægt þessum þol