Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson, innviðaráðherra um lagareldi var lagt fram á Alþingi í dag. Talsverðar breytingar voru gerðar á frumvarpinu síðan það var birt í samráðsgátt til að bregðast við þeim athugasemdum sem sendar voru inn.Megnið af athugasemdunum sem bárust voru frá einstaklingum sem gagnrýndu fiskeldi í opnum sjókvíum út frá náttúruvernd. Þó voru einhverjar sem fögnuðu fyrirhugaðri lagasetningu.Alls bárust 923 umsagnir frá einstaklingum, fyrirtækjum, hagsmunaaðilum, stjórnvöldum, sveitarfélögum og samtökum þeirra. Tekið er fram í greinargerð frumvarpsins að ef horft er til þess að hver umsögn frá hverjum aðila telji aðeins einu sinni lækkar talan um 100.Utan samráðsgáttar bárust þó fleiri umsagnir eða alls 1635. Þær voru frá þeim sem ekki gátu auðkennt sig með rafrænum skilr