Aldrei hefur jafn mikil kvika safnast undir Svartsengi frá upphafi eldgosahrinu á Sundhnúksgígaröðinni. Magnið bendir til að líklegt sé að gjósi á ný.Kvika undir Svartsengi hefur ekki verið meiri frá upphafi eldgosanna á Sundhnúksgígaröðinni. Átta mánuðir eru frá síðasta gosi.Landris og kvikusöfnun hafa verið hæg en stöðug síðustu vikur. Talið er að um 23 milljónir rúmmetra af kviku hafi safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi. Átta mánuðir eru frá því að síðast gaus á Sundhnúksgígaröðinni. Þetta er lengsta goshléð sem hefur verið frá því að eldsumbrotin hófust og mesta kvikumagnið sem safnast hefur.Miðað við hversu mikið magn af kviku hefur safnast saman undir Svartsengi telja vísindamenn líklegt að það endi með gosi. Mestar líkur eru á að gjósi á Sundhnúksgígaröðinni, norðaustan við