Vart líður sá dagur að ekki berist fréttir af netárásum einhvers staðar í heiminum. Færri gera sér hins vegar grein fyrir því að eigin tæki gætu átt óbeina aðild að slíkum árásum.Netöryggissveitin CERT-IS hefur greint ummerki um að um fimm þúsund snjalltæki og tölvur á Íslandi hafi verið sýkt af spilliforritinu BADBOX. Um er að ræða hugbúnað sem getur tengt tæki saman í svonefnt botnet, eða yrkjanet, sem óprúttnir aðilar geta síðan nýtt í frekari árásir. > „Þetta er net af tækjum sem er stýrt af einhverjum árásaraðila sem getur nýtt tækin í frekari árásir,“ segir Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS. Skýring HVERNIG BADBOX VIRKAR Frá sýktu tæki yfir í botnet og netárásir 📱 SÝKT TÆKI Ódýrt Android-tæki, til dæmis streymisbox, spjaldtölva eða snjallsjónvarp. ↓ ⚠️ BAKDYR Í TÆKIN