Rúmlega milljón er á flótta í Líbanon vegna loftárása Ísraelshers síðustu vikur og á níunda hundrað hafa verið drepin í árásunum. Ísraelsher réðst í hernaðaraðgerð í suðurhluta landsins í dag. TAKMÖRKUÐ HERNAÐARAÐGERÐ „Við Netanjahú forsætisráðherra gáfum hernum skipanir um að leggja í rúst innviði hryðjuverkamanna í landamæraþorpum Líbanons til að koma í veg fyrir ógnir og endurkomu Hezbollah. Rétt eins og við fórum að á Gaza,“ sagði Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, á fundi með fjölmiðlum í dag.Hernaðaraðgerð Ísraelshers er sögð takmörkuð. Herinn hefur gert stöðugar loftárásir á Líbanon síðan 2. mars eftir að Hezbollah skutu eldflaugum yfir landamærin sem viðbragð við drápi Ísraela og Bandaríkjamanna á Khamenei æðstaklerki Írans.Síðdegis sögðu yfirvöld í Líbanon að yfir milljón