Enginn verður á biðlista eftir hjúkrunarrými árið 2030, gangi áætlanir félags- og húsnæðismálaráðherra eftir.Ný áætlun ráðherra var kynnt á Hrafnistu, í Garðabæ, í dag.725 eru á biðlista eftir hjúkrunarrými og listinn lengist því sífellt fjölgar í hópi aldraðra. 200 einstaklingar á þessum lista eru í biðrýmum á heilbrigðisstofnunum.Skortur á hjúkrunarrýmum er ein helsta ástæðan fyrir alvarlegri stöðu Landspítalans; aldrað fólk sem lokið hefur meðferð liggur áfram á spítalanum því það fær hvergi inni á hjúkrunarheimili. KYNNTI NÝJA „LEIGULEIГ OG SEGIR MÖNNUN VERÐA ÁSKORUN Í fyrra voru gerðar breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu og málefni aldraðra og uppbygging hjúkrunarheimila er nú alfarið á vegum ríkisins.Fyrra samkomulag byggðist á sameiginlegu eignarhaldi ríkis og sveitarfélag