Þær Júlí Arna Sigurjónsdóttir, Elísabet Inga Þórisdóttir og Aþena Rós Einarsdóttir í 10. bekk í grunnskólanum í Vestmannaeyjum sigruðu hönnunarkeppnina Stíl á laugardaginn. Þema keppninnar var Viktoríutímabilið og vinningsliðið bar nafnið Gyllta flóran. Útsjónarsemin var allsráðandi við efnisval í kjólinn. KEPPNIN STERK Júlí Arna segir keppnina hafa verið gríðarlega sterka og að tilfinningarnar hafi nánast borið vinkonurnar ofurliði þegar úrslitin voru tilkynnt.„Við hálfpartinn öskruðum þegar það var kallað nafnið á félagsmiðstöðinni okkar um að við hefðum unnið. Við vorum ótrúlega hissa.“Nánast engu var eytt í hönnunina nema tíma.„Við notuðum bara gömul efni úr saumastofunni í skólanum. Þú veist allur kjóllinn er úr gardínum, bara notuðum gardínum,“ segir Júlí Arna.Og skiptuð þið eitth