Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag mann sem sveiflaði sverði á miðri akbraut.Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi verið „vanstilltur“ og „talsvert æstur“. Lögregla yfirbugaði manninn, sem var illa viðræðuhæfur sökum vímuástands, eins og þar segir.Sverðið reyndist eftirlíking. Maðurinn var vistaður í fangaklefa og verður þar uns hann verður metinn hæfur til skýrslugjafar.RÚV / Ragnar Visage