Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögðu hald á yfir 600 þúsund fölsuð leikföng

Lögregluþjónar á Spáni lögðu hald á meira en 600 þúsund leikföng í rassíum í grennd höfuðborgarinnar Madrídar. Meira en 25 tonn af leikföngum voru gerð upptæk í aðgerðum lögreglu. Það voru allt eftirlíkingar leikfanga frá þekktum og vinsælum vörumerkjum.Aðgerðir lögreglu voru afrakstur rannsóknar sem hófst í febrúar eftir að grunur vaknaði um að mikill fjöldi vörusendinga frá Kína gæti innihaldið eitthvað vafasamt. Skjölin sem fylgdu sendingunum þóttu óvenjuleg og því ákvað lögregla að kanna málið betur.Leikföngin voru allt eftirlíkingar þekktra vörumerkja. Börnum var talin stafa sérstök hætta af vörunum sem voru illa úr garði gerðar.Í fyrstu rassíunni lagði lögregla hald á 78 kassa sem reyndust innihalda varning af litlum gæðum sem ekki uppfyllti evrópska öryggisstaðla. Vörurnar voru tald
Lögðu hald á yfir 600 þúsund fölsuð leikföng

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta