Áfram var tekist á um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB á Alþingi í dag.Þingfundur hófst klukkan þrjú á óundirbúnum fyrirspurnatíma til ráðherra og sneri meirihluti fyrirspurna að fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra gagnrýndi málflutning stjórnarandstöðunnar eftir spurningar Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins.Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, var fyrst og kallaði eftir útskýringum á hvaða forsendum ríkisstjórnin ætlaði í aðildarviðræður. Hún taldi nauðsynlegt að þjóðin fengi að vita á hvaða forsendum aðildarviðræður við ESB hæfust.Hún leit aftur til umræðna um ESB árið 2009 og sagði að forsendur hefðu þá legið skýrar fyrir.„Þá