Slökkvilið hefur verið kallað út eftir að eldur kviknaði í rútu í Helluhverfi í Hafnarfirði. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var rútan mannlaus og verið var að flytja hana milli staða á vöruflutningabíl.Eftir því sem fréttastofa kemst næst er rútan við Breiðhellu. Gatan er lokuð meðan á slökkvistarfi stendur.Fréttin verður uppfærð.