Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þriðja plata Izleifs er 100&einn

Ísleifur Eldur Illugason byrjaði sem pródúser í menntaskóla en færði sig fljótlega yfir í rapp og söng, þar sem honum fannst vera hola í markaðnum fyrir tilfinningarapp og sungin partílög.100&einn frá Izleifi inniheldur 17 ný lög frá rapparanum og framleiðandanum og er hans stærsta verk til þessa. Platan er innblásin af uppeldishverfinu 101 og fjallar um lífið þar, kvíða, þunglyndi og einsemd innan um partístand og stemningu. Ísleifur leggur áherslu á að þetta sé ekki uppgjör við uppeldið, heldur lýsing á því hvernig umhverfið hefur mótað hann.Það er gestkvæmt hjá Izleifi á 100&einn og þar má heyra í Birni, Flóna, Herra Hnetusmjör, Joey Christ, GDRN, Elín Hall og Gísla Galdri.Atli Már Steinarsson ræddi við Ísleif um ferillinn og plötu vikunnar á Rás 2.
Þriðja plata Izleifs er 100&einn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta