Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Skýr skilaboð út í samfélagið – við ætlum að útrýma biðlistum“

Yfir 500 biðu eftir hjúkrunarrými í byrjun árs en stjórnvöld gera ráð fyrir því að í árslok 2029 verði enginn á biðlista. Málaflokkurinn er á borði Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sem segir stjórnvöld senda skýr skilaboð út í samfélagið. „Við ætlum að útrýma biðlistum. Við erum ekki sátt við að nokkur þurti að bíða einhvers staðar, vera í bílakjallara eða frammi á gangi án þess að njóta umönnunar, hlýju og nauðsynlegrar þjónustu sem við þráum öll á efsta æviskeiðinu.“Í lok ársins 2030 er gert ráð fyrir að á landinu verði alls 4.417 hjúkrunarrými. Miðað við mannfjöldaspá verði níutíu og einn í biðrými og enginn á biðlista. Inga segir að gert verði ráð fyrir uppbyggingunni í fjármálaáætlun.„Það mun ekkert standa út af.“
„Skýr skilaboð út í samfélagið – við ætlum að útrýma biðlistum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta