Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Allir sakborningar neita sök í Reykholtsmálinu

Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, neituðu í dag sök í máli þar sem þau eru ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán í Reykholti fyrir tveimur árum.Ákæran á hendur fólkinu var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sakborningar hafna jafnframt bótakröfum í málinu. Áætlað að aðalmeðferð hefjist 17. ágúst.Sakborningarnir, sem eru tengdir fjölskylduböndum, eru sagðir hafa ruðst inn á heimili mannsins í Reykholti, bundið hendur hans saman með strigalímbandi og veist að honum með grófu ofbeldi.Manninum hafi síðan verið haldið föngnum á heimili sínu , honum hótað, ógnað með hníf og haglabyssu, og beittur grófu ofbeldi, allt í þeim tilgangi að fá hann til að gefa þeim rafræn skilríki og upplýsingar um bankareikninga hans.Eftir a
Allir sakborningar neita sök í Reykholtsmálinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta