Lokamálflutningur í réttarhöldum yfir Mariusi Borg Høiby hófst í dag. Hann hefur neitað sök í nær öllum ákæruliðum. Réttarhöldin yfir Høiby hófust í byrjun febrúar. Hann er sonur Mette Marit krónprinsessu og stjúpsonur Hákons krónprins Noregs.Í lokaávarpi sínu lagði héraðssaksóknarinn Sturla Henriksbø út af orðum sem Høiby lét falla á föstudag. Þá sagði hann að hann væri ekki lengur Marius Høiby, heldur skrímsli.„Marius Borg Høiby er ekki skrímsli, ekkert okkar er það,“ sagði Henriksbø. Við værum öll manneskjur með góðar og slæmar hliðar. Ekki ætti að dæma Marius fyrir það hver hann er, heldur fyrir það sem hann hefur gert. Saksóknarinn sagði Høiby ekki virða þær reglur sem við þyrftum öll að fylgja.Høiby hefur neitað sök í öllum alvarlegustu ákæruliðunum. Hann er meðal annars ákærður fyri