Rýmingu var aflétt á Ísafirði í morgun og búið er að opna alla vegi nema um Dynjandisheiði. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi og gul viðvörun tekur gildi í kvöld.Það var ekkert ferðaveður á Vestfjörðum um helgina og á þekktum snjóflóðasvæðum var vegum lokað. Veðrið var þannig að nánast öll þéttbýli á Vestfjörðum voru einangruð. Varðskipið Þór hefur verið til taks á Ísafirði til að tryggja öryggi. VEGFARENDUR HVATTIR TIL AÐ AKA MEÐ GÁT Reitur 9 á Ísafirði var rýmdur vegna snjóflóðahættu. Þar er til að mynda Netagerðin, sem hýsir sorpflokkun og vinnustofur listamanna. Rýmingu var aflétt í morgun.Lögreglan á Vestfjörðum segir eitthvað hafa verið um að bílar festust á heiðum og björgunarsveitir fóru í þau verkefni. Í tilkynningu frá lögreglu á samfé