Nafn fjölmiðlamannsins Alex Jones hefur á síðustu árum orðið samnefnari fyrir upplýsingaóreiðu og samsæriskenningar í bandarísku samfélagi. Jones hóf feril sinn í Austin í Textas á tíunda áratugnum, stendur á bak við vefmiðilinn og sölusíðuna Infowars og er þekktastur fyrir að boða skrautlegar samsæriskenningar þar sem ríkisvaldið svífst einskis til þess að blekkja almenning.