Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ásakanir um erlend áhrif í aðdraganda þingkosninga

„Fidez er popúlískur flokkur þannig að þeir þurfa alltaf á óvinum að halda,“ segir Veronika Munk, ungversk blaðakona sem fylgst hefur með stjórnmálum í Ungverjalandi um árabil. „Áður voru það mismunandi óvinir, eins og Roma fólkið, eða Brussel og [Ursula] Von der Leyen, stundum er það ákveðin manneskja, eða minnihlutahópur og stundum er það eitt ákveðið ríki og núna er það Úkraína,“ segir Munk sem vinnur fyrir óháða fjölmiðilinn Denník N sem gefinn er út í Ungverjalandi, Slóvakíu og Tékklandi. Munk skrifar einnig vikulegan pistil um kosningabaráttuna (á ensku) á Substack.(Viðtal við Munk (á ensku) er neðst í færslunni.)Tugir þúsunda mættu á kosningasamkomur sem haldnar voru í Búdapest í gær þegar haldið var upp á þjóðhátíðardag Ungverjalands, nú þegar innan við mánuður er til þingkosninga.
Ásakanir um erlend áhrif í aðdraganda þingkosninga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta