Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Starfsfólk slökkti eld í iðnaðarþurrkara

Starfsfólk brást fljótt við og náði að slökkva eld sem kom upp í iðnaðarþurrkara í húsi fyrirtækisins Daga í Garðabæ í morgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var með mikinn viðbúnað þegar útkall barst vegna eldsins og aukinn mannskapur var kallaður út, að sögn Ólafs Garðarssonar varðstjóra. Liðsaukinn var svo kallaður til baka eftir að í ljós kom að starfsfólkið hafði náð stjórn á aðstæðum.Þegar frétt þessi er skrifuð er verið að reykræsta húsið.
Starfsfólk slökkti eld í iðnaðarþurrkara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta