Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ætla að tæma biðlista í hjúkrunarrými fyrir lok 2029

Rúmlega 1.300 ný hjúkrunarrými verða tekin í notkun næstu fjögur árin og rúmlega 150 önnur bætast við vegna endurbóta á eldri rýmum. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnti áætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila til ársloka 2030 í dag.200 manns voru í biðrýmum í byrjun árs og 525 til viðbótar á biðlista eftir hjúkrunarrými.Inga Sæland er mennta- og barnamálaráðherra en málaflokkurinn liggur hjá henni. Hún segir áætlunina marka þáttaskil.Inga og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu einnig samning um nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri með allt að 100 rýmum. Áætlað er að það verði opnað árið 2029.Meirihluti nýrra rýma verður á höfuðborgarsvæðinu, eða tæplega 900, um 140 rými verða tekin í notkun á Norðurlandi og álíka mörg á Suðurnesjum. Tekið er fram að áformin séu háð s
Ætla að tæma biðlista í hjúkrunarrými fyrir lok 2029

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta