Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hættuástandi lýst yfir vegna eldsneytismengunar í Dniester-ánni

Stjórnvöld í Moldóvu hafa lýst yfir 15 daga hættuástandi á vatnasvæðinu í og við Dniester-ánni í Moldóvu vegna eldsneytismengunar. Talið er að eldsneyti hafi lekið í ánna þegar Rússar gerðu árásir á Dniester-vatnsaflsvirkjunina í Úkraínu 7. mars.Stjórnvöld í Úkraínu greindu fyrst frá menguninni þremur dögum síðar, þegar hennar varð vart nærri þorpinu Lyadova í Úkraínu. Mengunin barst með Dniester-ánni áfram inn í Moldóvu.Yfirvöld þar í landi hafa komið upp hreinsibúnaði og gefið út viðvaranir til íbúa um að fylgja leiðbeiningum stjórnvalda á meðan hættuástandið varir. Íbúar eiga ekki að drekka, elda eða nota vatn frá ánni fyrr en hættuástandi hefur verið aflýst.Ekki er vitað hversu mikið eldsneyti lak í ána en úkraínsk yfirvöld hafa sagt mengunina vera umtalsverða. Stjórnvöld í Moldóvu haf
Hættuástandi lýst yfir vegna eldsneytismengunar í Dniester-ánni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta