Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ástralir og Japanir ætla ekki að senda herskip til Hormússunds

Samgöngumálaráðherra Ástralíu, Catherine King, sagði í viðtali við ástralska ríkissjónvarpið ABC að Ástralir ætli ekki senda herskip til Hormússunds. Fréttaveitan AFP greinir frá.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur óskað eftir því að þjóðir sem flytja inn olíu frá Persaflóa sendi herskip til að aðstoða við að opna Hormússund og tryggja öryggi ferða olíuflutningaskipa um sundið. King segir að áströlsk stjórnvöld hafi ekki verið sérstaklega beðin um að senda skip en þau ætli ekki að leggja til skip.Þá hefur Shinjiro Koizumi, varnarmálaráðherra Japan, sagt að stjórnvöld í Japan séu ekki að íhuga að senda herskip til Hormússunds að svo stöddu. Japan skilgreinir sig sem friðarþjóð og því gæti það orðið viðkvæmt mál í Japan og á japanska þinginu ef landið tæki þátt í hernaðaraðgerðum erlendis.F
Ástralir og Japanir ætla ekki að senda herskip til Hormússunds

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta