Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Eldur í íbúð í Úlfarsárdal

Eldurinn kom upp í íbúð í Friggjarbrunni.RÚV / Jón Þór VíglundssonEldur kom upp í íbúð í Friggjarbrunni í Úlfarsárdal í kvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út kl. 21:12. Íbúar komust út af sjálfsdáðum og urðu engin slys á fólki.Íbúðin er á efstu hæð í 3. hæða fjölbýlishúsi. Eldurinn náði ekki að breiðast út til annarra íbúða og voru því íbúar þeirra ekki í hættu.Guðjón Ingason, varðstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, segir að slökkvistarf hafi gengið greiðlega. Eldsupptök séu ókunn. „Það er búið að reykræsta íbúðina en hún verður ekki nothæf fyrr en búið er að þrífa sótið og brunalyktina, og tryggingafélag sér um það,“ segir Guðjón. Vinnu á vettvangi lauk kl. 22:26.
Eldur í íbúð í Úlfarsárdal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta