Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Biður fólk um að fylgjast með og fara með gát

Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri á Norðurlandi eystra, biður fólk um að fylgjast með stöðunni og fara með gát.Stórt snjóflóð féll á varnargarð ofan við innsta hluta þéttbýlisins á Siglufirði í dag. Veðurstofan hefur lýst yfir óvissustigi fyrir norðan vegna snjóflóðahættu.„Við höfum svo sem tilmæli til íbúa, sérstaklega á Siglufirði, að íbúar syðst og efst í Suðurgötu sérstaklega verði hlémeign í húsum og fylgist vel með.“Hermann segir að ekki verði farið í rýmingar að svo stöddu en að fólk sé beðið um að fara með gát, sérstaklega í kringum ákveðin svæði.„Sem og með hafnarsvæðið, í Skollaskál á móti byggðinni geta fallið flóð til sjávar sem kalla þá á ágjöf í höfninni á Siglufirði, þannig að vera ekki á ferðinni þar að óþörfu og fylgjast vel með.“
Biður fólk um að fylgjast með og fara með gát

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta