Tólf útgáfufélög, Blaðamannafélag Íslands og Öryrkjabandalag Íslands hafa skilað umsögnum um frumvarp til breytinga á lögum um fjölmiðla. Flestir eru sammála um að meira þurfi til að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla. Umsagnarfrestur í samráðsgátt rennur út í dag.Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kynnti aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla í desember. Meðal breytinga er að fjölmiðlar sem uppfylla skilyrði um fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu geta sótt um aukastyrk. Þá mun hluti auglýsingatekna RÚV renna til einkarekinna fjölmiðla samkvæmt áætlun ráðherra. Frumvarp var birt í samráðsgátt í lok febrúar og í dag rennur umsagnarfrestur út.Auk Blaðamannafélagsins hafa útgefendur Morgunblaðsins, DV, Viðskiptablaðsins, Grapevine og Lifandi vísinda skilað um