Fimmtudaginn 26. mars ganga frændur okkar í Færeyjum til þingkosninga sem gætu reynst örlagaríkar eins og svo margar. Þinginu var slitið í óþökk stærsta hluta ríkisstjórnarinnar og með svikabragði að mati sumra. Það bætir einnig í dramatíkina að líklegasta lögmannsefnið samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er bróðursonur sitjandi lögmanns.