Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Segir markmið Bandaríkjanna og Ísraels í Íran ekki þau sömu

Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Mið-Austurlanda, segir að stríðið í heimshlutanum muni stigmagnast enn frekar ef til landhernaðar kemur. Það verði mjög blóðugt ef þeir fimm þúsund bandarísku landgönguliðar, sem sagðir eru vera á leið til Mið-Austurlanda, verður stefnt í landhernað í Íran.Þó það gerist ekki mun stríðið þó stigmagnast enn frekar að hans mati, ekki í síst í ljósi alls þess fjölda ríkja og vígahópa sem eiga beina og óbeina aðkomu að því.„Ef fleiri ríki eins og Suður-Kórea og Pakistan og Tyrkir og Bretar og Fakkar og Egyptar og Jórdanar og önnur ríki á þessum slóðum fara að taka þátt með einum eða öðrum hætti, þá verður ástæða til þess að svara fyrir sig. Og þá kannski kemur einhver pressa frá íbúum þessa lands að gera eitthvað meira ef ráðist er á þá eða ef þeir
Segir markmið Bandaríkjanna og Ísraels í Íran ekki þau sömu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta