Tónlistarkonan Ásta Kristín Pjetursdóttir segist hafa fengið svo misvísandi svör frá aðstandendum Íslensku tónlistarverðlaunanna að óhjákvæmilega læðist að henni grunur um að til hafi staðið að tilnefna hana en sú ákvörðun einhverra hluta vegna verið dregin til baka. Hún þrýstir því áfram á um skýr og gagnsæ svör.