Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Forsætisráðherra segir Íslendinga óhrædda andspænis róti í alþjóðakerfinu

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir marga þakka fyrir þá forystu sem hún segir að Kanada hafi sýnt á alþjóðasviðinu, á tímum þar sem mikið rót hefur verið á þeim vettvangi. Hún segir Ísland hafa miklar áhyggjur af Grænlandi en sé tilbúið að nýta sér þá auknu athygli sem heimsbyggðin sýnir Norðurslóðum í kjölfarið á ásælni Bandaríkjaforseta í landið. Þetta sagði hún á blaðamannafundi með forsætisráðherrum Noregs, Danmerkur, Kanada, Finnlands og Svíþjóðar í Osló í dag. Þar fundaði þessi hópur um samstarf ríkjanna og skrifaði undir sameiginlega yfirlýsingu um að dýpka enn frekar samband þeirra í milli.„Ég tel að það séu margir, ekki bara leiðtogar, heldur þjóðir víða um heim, sem eru þakklátir fyrir þá forystu sem Kanada hefur sýnt undanfarna mánuði. Mér finnst það hafa verið tóm sem
Forsætisráðherra segir Íslendinga óhrædda andspænis róti í alþjóðakerfinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta