Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vilja rauð­vín á föstu­dögum á Sel­fossi

Starfsemi Félags eldri borgara á Selfossi hefur sjaldan eða aldrei verið eins öflug eins og í vetur enda er boðið upp á um 35 dagskrárliði alla vikuna. Stólaleikfimi, perlusaumur og Kínaskák njóta til dæmis mikilla vinsælda. Það nýjasta er að nú vilja eldri borgarar rauðvín með matnum á föstudögum en nautakjöt hefur verið tekið út af matseðlinum því það er svo erfitt að tyggja það.Um 1100 manns eru í Félagi eldri borgar á Selfossi og fer félagsmönnum stöðugt fjölgandi. Dagskrá félagsins er mjög fjölbreytt en hún fer fram í Grænumörk, sem er félagsaðstaða félagsins í nokkrum sölum þar.Magnús J. Magnússon er formaður félagsins.„Já, þetta er náttúrulega magnað. Við erum með um ellefu hundruð manna félag og erum með 35 til 36 viðburði í viku og mikla þátttöku í öllu því sem boðið er upp á. Það
Vilja rauð­vín á föstu­dögum á Sel­fossi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta