Pólski rithöfundurinn Maó Alheimsdóttir hlaut Fjöruverðlaunin fyrir ljóðabók sína Hvalbak í byrjun mánaðar. Hún skrifar á íslensku og hefur sent frá sér tvær ljóðabækur og eina skáldsögu, og er fyrsti höfundurinn af erlendum uppruna sem skrifar og gefur út skáldsögu á íslensku.Maó býr á Íslandi og starfar meðal annars sem fjallaleiðsögumaður og má sjá ást hennar á náttúrunni í skáldskap hennar. Egill Helgason ræddi við Maó í Kiljunni á RÚV. ÞARF ALLTAF AÐ ÚTSKÝRA SJÁLFA SIG OG ÁKVAÐ AÐ GERA ÞAÐ Í GEGNUM NÁTTÚRUNA „Ég þarf alltaf að útskýra hvaðan ég er og hvað ég er að gera hér og hvernig ég tengist þessum stað. Mér fannst eins og ég vildi einhvern veginn staðsetja mig hér,“ segir Maó um það hvers vegna hún skrifi svo mikið um íslenska náttúru. „Þá hugsaði ég meira í náttúru af því að é