Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Nokkur smærri snjóflóð og rýmingar í gildi á Ísafirði og Siglufirði

Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum og á Ísafirði er hættustig. Þar hafa nokkur atvinnuhús undir Seljalandshlíð verið rýmd, á reit níu – þar er meðal annars Netagerðin sem hýsir ýmsa atvinnu og listastarfsemi.Til fjalla er spáð snjókomu segir á vef Veðurstofunnar og þar má búast við skafrenningi í dag og næstu daga því safna ætti snjó í upptakasvæði snjóflóða.Nokkur snjóflóð hafa fallið í nótt og í morgun, úr Ósbrekkufjalli norðan Ólafsfjarðar, úr gili skammt innan Flateyrar, úr norðurhlíð Súgandafjarðar auk nokkurra flóða í Skutulsfirði og Syðridal við Bolungarvík.Ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofunni segir flóðin lítil.„Þetta er kannski stærð tveir á þessum skala og þau ógna ekki neinu, enn þá,“ segir Óliver Hilmarsson.Eru líkur til þess miðað við
Nokkur smærri snjóflóð og rýmingar í gildi á Ísafirði og Siglufirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta