Laufey heillaði alla upp úr skónum á tónleikum sínum í gærkvöldi segir Ísleifur Þórhallsson framkvæmdastjóri Senu Life. Skipulagðar sætaferðir frá Kórnum í Smáralind gengu vel og um klukkutíma tók að tæma húsið. Undirbúningur er þegar hafinn í Kórnum fyrir seinni tónleika Laufeyjar í kvöld.„Maður hefur bara sjaldan upplifað aðra eins stemningu og allt gekk vel og fólk fór bara út með tár í augunum sýndist mér í stórum stíl,“ segir Ísleifur, „það eitthvað svo mikil ást á Laufeyju og hún er orðin svo stór og þetta voru hennar heimkomutónleikar. Og fólk var klætt eins og hún og maður bara fann spennuna í loftinu. Svo mætti hún á svið og færði okkur bara ótrúlega tónleika. Svona rifjaðist upp fyrir öllum held ég af hverju hún er orðin súperstjarna. Hún bara heillar alla upp úr skónum og fer be