Björgunarsveitir á Vestfjörðum og Reykjavík voru stóran hluta nætur að aðstoða ferðalanga sem voru í vandræðum sökum slæmrar færðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.Þar segir að á öðrum tímanum í nótt hafi Hjálparsveit skáta í Reykjavík verið send upp á Sandskeið til að aðstoða fjölda fólks sem lent hafði í vandræðum vegna slæmrar færðar og skyggnis. Þar stóðu bílar fastir frá Lækjarbotnum og austur fyrir afleggjarann upp í Bláfjöll.Mikil hálka var á veginum og þreifandi bylur og einhverjir ökumenn höfðu lent út af veginum. Farþegar hátt í 20 ökutækja voru aðstoðaðir, ýmist með því að flytja þá í bæinn eða losa bíla þeirra og fylgja þeim í bæinn. Aðgerðum lauk klukkan hálf sex í morgun.Um svipað leyti var björgunarsveitin Tálkni á Tálknafirði kölluð út vegn