Grænlenskur stjórnmálamaður segir Grænlendinga fara á mis við töluverðar tekjur með því að stýra ekki flugumferð yfir landinu. Fyrrverandi flugmálastjóri segir dæmið ekki vera svo einfalt því tekjur af flugumferðastjórn skili ekki miklu beint í ríkiskassann.Ísland hefur sinnt flugleiðsöguþjónustu yfir Norður-Atlantshafi allt frá lokum seinni heimsstyrjaldar og Nuuk-flugstjórnarsvæðið er um 70% af heildarflugstjórnarsvæðinu.Vittus Qujaukitsoq, fyrrverandi fjármálaráðherra grænlensku landstjórnarinnar, telur fyrirkomulagið hamla Grænlendingum, líkt fram kom í viðtali við kanadíska dagblaðið The Globe and Mail. Hann segir að það yrði skref í átt að efnahagslegu sjálfstæði Grænlendinga að sinna flugumferðastjórninni sjálfir.Hann áætlar að það myndi skila 30-40 milljónum Bandaríkjadala á ári. Þ