„Mig langar að opna umræðuna um það að strákar geti líka orðið fyrir heimilisofbeldi.“ Þannig hefst frásögn Brynju Ýrar Baugsdóttur, móður 18 ára pilts sem varð fyrir margvíslegu ofbeldi af hálfu fyrrverandi kærustu. Brynja segir að reynsla sonar hennar hafi opnað augu hennar fyrir veruleika sem fáir tali um opinberlega, þrátt fyrir að slíkar aðstæður séu ekki eins sjaldgæfar og margir halda.