Hættustig hefur verið sett á Flateyrarveg og veginn um Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu og óvissustig er víða í gildi. Hættustig er einnig í gildi vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og nokkur fjöldi snjóflóða hefur fallið á norðanverðum Vestfjörðum og Tröllaskaga í morgun.