Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Snjóflóð féllu ofan við Ísafjörð og í Ólafsfirði

Þrjú snjóflóð féllu úr Seljalandshlíð og eitt úr Gleiðarhjalla ofan við Ísafjörð í nótt. Flóðin féllu ofan við atvinnusvæði sem rýmt var í morgun. Stórt flóð féll úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði, yfir veg og út í sjó.„Þetta voru mest flóð bara á þekktum stöðum og fyrir ofan þetta svæði sem var rýmt í morgun. Þau voru ekki mjög stór en eitt fór samt yfir veginn sem liggur upp á Seljalandsdal,“ segir Magni Hreinn Jónsson, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um flóðin sem féllu ofan við Ísafjörð.Óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi á svæðinu og Magni segir flóðin í samræmi við það sem við var búist. Hann segir viðbúið að fleiri flóð geti fallið á svæðinu.„Það getur alveg verið, það eru þarna fleiri þekktir farvegir sem hefur ekki komið flóð úr þannig það geta alveg farið flóð þ
Snjóflóð féllu ofan við Ísafjörð og í Ólafsfirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta