Þýskt par komst í hann krappan í Helsingjabotni í vikunni. Finnska ríkisútvarpið YLE greinir frá.Fólkið hafði farið á skíðum frá Oulu í Finnlandi og ætlaði sér að skíða yfir frosinn Helsingjabotn yfir til Luleå í Svíþjóð. Þau gistu í tjaldi á leiðinni en um nóttina tók ísinn að brotna upp og þau misstu nær allan búnaðinn sinn í hafið. Þau náðu að koma sér yfir á tryggari ís og senda út neyðarkall.Björgunarflugvél fann þau nokkrum klukkustundum síðar þrátt fyrir að aðstæður væru krefjandi til leitar. Fólkið, sem er þaulreynt skíðafólk, hafði raðað ísklumpum og myndað orðið SOS á ísnum svo björgunarleitarfólk kom auðveldlega auga á neyðarkall þeirra úr flugvél. Fólkið var kalt eftir hrakfarirnar en að öðru leyti við góða heilsu.Helsingjabotn er langur flói milli Svíþjóðar og Finnlands og nyr